Útimyndataka
Náttúrulegar myndir í fallegu umhverfi
Útimyndataka er frábær kostur fyrir þau sem vilja frjálslegri og náttúrulegri myndir. Í stað þess að vera bundin við stúdíóið notum við umhverfið í kringum okkur sem hluta af myndunum og leyfum ykkur að vera meira á hreyfingu.
Ungbarnamyndataka, barnamyndataka, fjölskyldumyndataka, stórfjölskyldumyndataka, einstaklingsmyndataka, óléttumyndataka, gæludýramyndataka… við finnum stað sem hentar ykkur og þeim myndum sem þið hafið í huga.
Myndataka sem þarf ekki að vera uppstillt
Þið þurfið ekki að kunna að sitja fyrir. Ég leiðbeini þegar þess þarf en legg fyrst og fremst áherslu á að fanga eðlileg samskipti, hlátur, hreyfingu og tengsl.
Sérstaklega með börnum getur verið gott að leyfa þeim að hreyfa sig og vera þau sjálf. Þannig verða oft til myndir sem eru mun persónulegri en hefðbundnar uppstilltar myndir.
Staðsetningin skiptir máli
Við veljum staðsetningu í samráði við ykkur. Það getur verið falleg náttúra, fjara, skógur, gönguleið eða einfaldlega staður sem hefur sérstaka merkingu fyrir ykkur.
Útimyndataka gefur okkur einnig möguleika á að nýta mismunandi birtu, árstíðir og umhverfi til að skapa fjölbreyttar myndir.
Útimyndataka á höfuðborgar-svæðinu og víðar
Útimyndatökur geta farið fram víðs vegar á höfuðborgarsvæðinu og einnig annars staðar á Íslandi. Við finnum saman stað sem hentar ykkur, fjölskyldunni og þeirri stemningu sem þið viljið hafa í myndunum.
Markmiðið er að skapa náttúrulegar, einlægar og tímalausar myndir sem minna ykkur á þessa stund og hvernig henni leið.
Að myndatöku lokinni færðu sendan tengil á sýnishornaalbúm þar sem myndirnar eru algjörlega óunnar. Þar velur þú þær myndir sem þú vilt og ég fer í að vinna þær. Sýnishorn eru ekki afhent fyrr en greitt hefur verið fyrir myndatökuna sjálfa.
Myndum er skilað rafrænt bæði í prent- og skjáupplausn, í lit og svarthvítu. Þið sjáið svo sjálf um alla prentun og eru engar takmarkanir þar á.
Afgreiðslutími mynda er almennt allt að 3 vikur, miðað við þann dag sem val á myndum hefur verið staðfest.
Ef þið eruð að leita að útimyndatöku í Kópavogi eða á höfuðborgarsvæðinu, hafið samband og finnum saman rétta staðinn fyrir ykkar myndatöku.