Móðir, maki, kennari og ljósmyndari

Daðey heiti ég, móðir, maki, kennari, deildarstjóri yngsta stigs og ljósmyndari. Ég hef haft áhuga á ljósmyndun frá því ég var krakki og man vel eftir mér leikandi með gamlar myndavélar sem foreldrar mínir áttu - stöðugt að ramma inn augnablikin með ónýtum myndavélum. Þar sem ég bjó út á landi þá voru takmörkuð tækifæri til þess að læra eitthvað af viti og alls ekki hlaupið að því að koma filmum í framköllun, sem að hluta til skýrir notkunarleysið á fyrstu alvöru myndavélinni minni, Olympus OM-101 filmuvél sem ég fékk í fermingargjöf frá systkinum mömmu.

Það var í raun ekki fyrr tuttugu árum seinna, 2016, að ég fer að garfa í ljósmyndun að einhverri alvöru. Ég keypti mér Canon EOS 70D, fór á grunnnámskeið og lærði að taka myndir Manual. Ég sinnti áhugamálinu þó ekki mikið, aðallega til að taka tækifærismyndir af börnunum. Jólin 2019 fæ ég svo Canon 5DmIII í jólagjöf frá Kára mínum og var því “tilneydd” til að endurnýja linsurnar mínar. Það greip mig eitthvað græjuæði og ég varð auðvitað að réttlæta öll þessi kaup með því að nota búnaðinn og úr varð að ég fór nú að gera mér sérstakar ferðir til að sinna áhugamálinu og gefa því meira pláss í hinu daglega amstri. Í dag nota ég tvær Canon EOS R6 myndavélar.

Landslagsmyndir og náttúran hafa fram til þessa skipað stærstan sess í mínu áhugamáli. Vorið 2022 opnaði ég litla stúdíóaðstöðu í bílskúrnum mínum og hóf að spreyta mig á barna- og fjölskyldumyndatökum eins og mig hefur lengi langað til. Það er ekki af ástæðulausu sem ég hef sérhæft mig í barnamyndatökum, en allt frá 2008 hef ég starfað í leik- og grunnskólum sem iðjuþjálfi, leikskólakennari, sérkennari og grunnskólakennari. Ég hef lokið fjarnámi frá NYIP - New York Institute of Photography og ýmsum netnámskeiðum frá The School of Photography og Kelly Brown Online.

Fyrir mér snýst ljósmyndun ekki bara um fallega mynd. Hún snýst um fólk, tengsl og öll þessi litlu augnablik sem við gerum okkur oft ekki grein fyrir hversu mikils virði þau verða síðar.

Daðey, ljósmyndari DASMyndir

Initiate Your Project

We recommend completing the inquiry form to enable a prompt consultation and to implement a photography strategy aligned with your specific objectives.