Stúdíómyndataka

Persónulegar myndir í rólegu umhverfi

Stúdíómyndataka gefur okkur tækifæri til að einbeita okkur að því sem skiptir mestu máli – ykkur. Í stúdíóinu er rólegt og notalegt umhverfi þar sem við getum gefið okkur tíma til að skapa fallegar og persónulegar myndir.

Ungbarnamyndataka, barnamyndataka, fjölskyldumyndataka, stórfjölskyldumyndataka, einstaklingsmyndataka, gæludýramyndataka… ég aðlaga myndatökuna að ykkur og því sem þið viljið fá út úr henni.

Myndataka fyrir alla

Það þarf ekki sérstakt tilefni til að fara í stúdíómyndatöku. Kannski langar þig í fallegar portrettmyndir af þér, myndir af börnunum, fjölskyldumyndir eða einfaldlega myndir sem fanga þessa stund í lífinu.

Ég legg áherslu á að myndatakan sé afslöppuð og að öllum líði vel fyrir framan myndavélina – bæði börnum og fullorðnum.

Náttúrulegar og tímalausar myndir

Í stúdíóinu getum við haldið uppsetningunni einfaldri og látið fólkið njóta sín. Ég leiðbeini þegar þess þarf en vil fyrst og fremst ná fram eðlilegum svipbrigðum, tengslum og persónuleika.

Myndirnar eru unnar í náttúrulegum og tímalausum stíl svo þær verði fallegar núna og eftir mörg ár.

Stúdíómyndataka í Kópavogi

DASMyndir er með stúdíó í Kópavogi þar sem boðið er upp á fjölbreyttar stúdíómyndatökur fyrir einstaklinga, pör, börn og fjölskyldur.

Að myndatöku lokinni færðu sendan tengil á sýnishornaalbúm þar sem myndirnar eru algjörlega óunnar. Þar velur þú þær myndir sem þú vilt og ég fer í að vinna þær. Sýnishorn eru ekki afhent fyrr en greitt hefur verið fyrir myndatökuna sjálfa.

Myndum er skilað rafrænt bæði í prent- og skjáupplausn, í lit og svarthvítu. Þið sjáið svo sjálf um alla prentun og eru engar takmarkanir þar á.

Afgreiðslutími mynda er almennt allt að 3 vikur, miðað við þann dag sem val á myndum hefur verið staðfest.

Ef þú ert að leita að stúdíómyndatöku í Kópavogi eða á höfuðborgarsvæðinu, hafðu samband og finnum saman þá útfærslu sem hentar þér eða fjölskyldunni þinni best.

lítil fjölskylda að fagna 1. árs afmæli
sætar systur í barnamyndatöku
sætar systur í jólamyndatöku - fjölskyldumyndatöku