Heil og sæl Daðey og þakka þér kærlega fyrir myndatökuna og myndirnar.
Við erum mjög ánægð með myndatökuna og myndirnar sem við fengum. Ferlið frá bókun og til myndatöku var vel skipulagt og tillaga að staðsetningu einmitt í anda þess sem við vildum. Myndatakan sjálf var afslöppuð og þú gafst þér góðan tíma í að finna réttu staðina og uppstillingar sem skilaði sér í flottum myndum. Það er ekkert sem okkur dettur í hug sem hefði mátt betur fara - þvert á móti getum við mælt eindregið með þér fyrir myndatöku sem þessa.
Takk aftur kærlega, við erum mjög þakklát fyrir þessa rausnarlegu þjónustu hjá þér.
Bkv.Agnar
Takk kærlega fyrir frábæra þjónustu og vandað verk.
Við erum mjög sátt með útkomuna og höfum meira að keypt góðan ljósmyndaprentara til að geta prentað í góðum gæðum og safnað í myndaalbúm.
Myndatakan sjálf var mjög fagmanleg og þægileg aðstaða og meðhöndlun á meðan á henni stóð.
Kveðja kær,
Flati og Rea
Takk kærlega fyrir!
Að koma til þín í myndatöku var afslappað og þægilegt. Mjög flott aðstaða og þú gerðir allt upp á 10 til að fermingarbarninu myndi líða vel. Hann var pínu stressaður að koma í myndatöku en sagði eftir á að þetta hafi bara verið alveg fínt. Getum mælt 100% með DASmyndum Takk æðislega fyri okkur
Kv Inga Björg og fjölskylda
Sæl og blessuð Daðey,
Fyrst vil ég byrja á því að þakka þér kærlega fyrir fallegu myndirnar af drengjunum mínum. Þær eru nákvæmlega eins og ég vil hafa þær og svo fallegar.
Það var yndislegt að koma til þín. Þú ert með svo hlýja og þægilega nærveru. Myndirnar bárust á mettíma og unnar af fagmennsku.
Kærar þakkir fyrir okkur og okkur hlakkar til að sjá þig í næstu myndatöku :)
Bestu kveðjur, Margrét
Takk innilega fyrir þessar ótrúlega fínu myndir - við erum í skýjunum með þetta allt saman!
Ég og konan mín fórum með tveggja vikna dóttur okkar í nýburamyndatöku til Daðeyjar og erum himinlifandi með alla þjónustuna. Daðey tók hlýlega á móti okkur í stúdíóinu sínu og gaf sér allan þann tíma sem þurfti til að ná góðum myndum af svona litlu kríli. Hún sýndi hvað hún er einstaklega góð, natin og varkár með svona lítil börn. Fagmanneskja út í fingurgóma!
Bestu kveðjur
Helgi og Hrafnhildur
Sæl og takk kærlega fyrir myndirnar! Ekkert smá ánægð!
Ég er mjög ánægð að þú lést okkur prófa allskonar nýjar stellingar og sjónarhorn, sérstaklega þar sem sumt lét okkur skella upp úr og þá er maður ekki eins stífur í framan eins og á sumum myndunum. Ég er svakalega ánægð að þú náðir myndum af fyrsta dansinum og það var mjög skemmtilegt að sjá myndirnar af strákunum og kom mér skemmtilega á óvart að sjá myndirnar áður en athöfnin og veislan hófst - sumsé áður en við mættum á svæðið. Margar skemmtilegar þar.
Við gefum þér alveg topp einkunn, erum svakalega sátt með þetta allt saman!
Þúsund þakkir fyrir okkur
Silla og Árni
Takk fyrir! Við erum virkilega ánægð með myndirnar!
Við munum hiklaust mæla með þér og hafa samband ef okkur vantar ljósmyndara aftur!
Þú hefur góða nærveru og sýndir mikla þolinmæði. Við erum mjög ánægð með útkomuna og þakklát fyrir að hafa fengið þig sem ljósmyndara!
Takk sömuleiðis fyrir samveruna.
Bestu kveðjur, Sandra og Elvar
Elsku Daðey. Við erum í skýjunum með myndirnar! Stórkostlega ánægð.
Takk innilega fyrir að vera partur af deginum okkar. Þú trúir því ekki hvað við erum þakklát og hvað þú varst fullkomin í verkefnið. TAKK!
Daðey er með dásamlega nærveru, svo róandi og lét okkur líða svo vel og eðlilega. Hún náði að fanga augnablikin svo fallega og gerði allt til að mæta okkar óskum, við gætum ekki verið ánægðari með myndirnar og ljósmyndara.
Takk kærlega
Kveðja, Daggrós og Ævar
Okkar bestu þakkir fyrir gullfallegar myndir.
Það var yndisleg upplifun að koma til þín í myndatöku. Fyrstu dagarnir og vikurnar sem nýbakaðir foreldrar eru krefjandi en þú skapaðir rosalega notalegt og rólegt andrúmsloft í myndatökunni, hafðir endalausa þolinmæði gagnvart litla manninum og við nutum þessarar upplifunar í botn. Takk kærlega fyrir okkur og gullfallegu myndirnar, við munum klárlega heyra í þér næst þegar okkur vantar ljósmyndara
Bestu kveðjur, Thelma